Um helgina lauk Grill66-deild kvenna og lokaumferðin í Olís-deild kvenna fór einnig fram þó hún ljúki ekki fyrr en um næstu helgi þegar toppliðin Valur og ÍBV mætast í lokaleik deildarinnar. Selfoss féll úr Olís-deild kvenna eftir tap gegn ÍR í lokaumferðinni en á sama tíma tryggði Stjarnan sér sæti í umspilinu með ótrúlegu jafntefli gegn Haukum eftir að hafa verið sex mörkum undir í hálfleik 17-11. Hægt er að sjá lygilegar lokasekúndur leiksins hér. Þar er með ljóst hvaða lið mætast í umspilinu um laust sæti í Olís-deild kvenna sem hefst á sunnudaginn. Grótta sem endaði í 2.sæti Grill66-deildarinnar mætir Víking sem endaði í 3.sætinu og Stjarnan mætir FH sem endaði í 4.sæti Grill66-deildarinnar. FH og Stjarnan hafa mæst einu sinni í vetur í Powerade-bikarnum sem FH vann með einu marki. Það reyndist vera síðasti leikur liðsins undir stjórn Patreks Jóhannessonar sem var sagt upp störfum í kjölfarið. Umspilið hefst næstkomandi sunnudag og leikur tvö fer síðan fram á miðvikudagskvöldið 1.apríl. Vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér sæti í úrslitum umspilsins en ef leika þarf oddaleiki í umspilinu fara þeir fram laugardaginn 4.apríl.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.