Þjálfarar færeyska kvennalandsliðsins, Claus Leth Mogensen og Simon Olsen hafa valið 16 manna hóp fyrir lokaátökin í undankeppni EM og þar er meðal annars kunnuglegt nafn fyrir íslenska handboltaáhugamenn, Natasja Hammer leikmann Stjörnunnar í Olís-deild kvenna. Færeyingar eru í fínni stöðu í riðlinum í 2. sæti með fjögur stig, og eru því enn í alvöru baráttu um sæti á EM. Færeyjar taka á móti Íslandi 8.apríl og leika síðan gegn Svartfjallalandi ytra í lokaleik sínum í riðlinum. Þrír leikmenn færeyska liðsins leika í heimalandinu en Annika Friðheim Petersen sem leikur með EH Álaborg lék eitt sinn með Haukum. Ísland er á botni riðilsins með tvö stig en liðið mætir Færeyjum og síðan Portúgal hér á landi í apríl. Landsliðshópur Færeyja: Markverðir:
Rakul Wardum, Ringkøbing Håndbold
Annika Fríðheim Petersen, EH Aalborg
Aðrir leikmenn:
Elsa Egholm, Ajax København
Jana Mittún, Viborg HK
Maria Pálsdóttir Nólsoy, HH Elite
Marita Mortensen, HØJ
Lív Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København
Súna Krossteig Hansen, Skanderborg Håndbold
Natasja Hammer, Stjarnan
Brynhild Pálsdóttir, BK Ydun
Lív Sveinbjørnsdóttir Poulsen, VÍF
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe, H71
Rannvá Olsen, Ejstrup/Hærvejen
Pernille Brandenborg, Storhamar
Vár Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København
Bjarta Osberg Johansen, Kyndil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.