Samningi Agnars Smára rift
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Samkvæmt heimildum Handkastsins mun Agnar Smári Jónsson ekki leika með Val á næstu leiktíð í Olís-deild karla. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur uppeldisfélag hans, Valur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi hans.

Samningur Agnars Smára við Val var til ársins 2027 en nú er ljóst að hann mun ekki leika með liðinu á næstu leiktíð.

Agnar Smári hefur lítið spilað með Val á tímabilinu en hann hefur verið að glíma við meiðsli en Agnar Smári hefur verið í leikmannahópi Vals í 15 leikjum í vetur en hann hefur skorað 12 mörk. Í síðustu leikjum hefur hann verið í hlutverki liðstjóra.

Agnar Smári lék upp yngri flokka Vals en hann lék síðan lengi hjá ÍBV. Þaðan fór hann síðan til Mors-Thy í Danmörku í stuttan tíma. Hann kom svo aftur heim til Íslands og gekk aftur í raðir ÍBV. Hann sneri á ný í herbúðir Vals sumarið 2018 og hefur verið hjá Val síðan þá.

Agnar Smári er margfaldur Íslands- og bikarmeistari bæði með ÍBV og Val og þá varð hann Evrópubikarmeistari með Val á sínum tíma.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top