Íslenska karla landsliðið lék tvo vináttulandsleiki gegn Svíþjóð í síðustu viku sem töpuðust báðir með tveimur og þremur mörkum. Næsta verkefni íslenska landsliðsins verður í maí þegar liðið fer til Egyptalands og leikur þar tvo vináttulandsleiki í Kairó. Snorri Steinn var spurður að því í viðtali við Handkastið hvort hann væri búinn að ákveða hvernig hann myndi nálgast það verkefni og hvernig sá hópur yrði skipaður. ,,Ég er með alskonar hugmyndir en ég sveiflast alveg í báðar áttir. Auðvitað verður einhver öðruvísi nálgun á það verkefni miðað við þetta. En ég ætla líka að gera upp þetta verkefni og kíkja á leikina og æfingarnar aftur. Af fenginni reynslu þá verður langt liðið á tímabilið hjá öllum og við þurfum að taka stöðuna á mönnum hvað það varðar. Strákarnir eru undir miklu álagi og við þurfum líka að bera virðingu fyrir þeirra heilsu. Ef ég þekki þá rétt þá vilja samt flestir koma. En ég mun örugglega nálgast næsta verkefni aðeins öðruvísi," sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í samtali við Handkastið eftir síðari leikinn gegn Svíþjóð í Kaplakrika um helgina. ,,Nei, þá þarf ég að svara fyrir eitthvað sem ég hef lofað og ég ætla ekki að gera það," sagði Snorri Steinn að lokum er hann var spurður hvort hann vildi staðfesta að hann mun nálgast næsta landsliðsverkefni öðruvísi. Ísland mætir einnig Egyptalandi í janúar næstkomandi, þá í tveimur vináttulandsleikjum á heimavelli í undirbúningi beggja liða fyrir HM 2027 í Þýskalandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.