Riðill Íslands fyrir undankeppni EM 2028 klár
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dregið var í undankeppni EM karla árið 2028 í kvöld. Athöfnin fór fram í Lissabon í Portúgal en mótið fer fram þar árið 2028 ásamt Spáni og Sviss sem verða gestgjafar með Portúgölum.

Íslenska landsliðið dróst í riðil 3 með Serbum, Úkraínu og Eistum. Tvö efstu liðin í riðlinum komast á Evrópumótið 2028. Leikjaniðurröðun liggur ekki fyrir að svo stöddu en við munum færa ykkur fréttir af því um leið og hún er klár.

Leikið verður í fjórum borgum í lokakeppni EM 2028. Zürich í Sviss, Lissabon í Portúgal og í Valencia og Madrid á Spáni.

Úrslitahelgin verður haldin í Madrid.

Undankeppnin hefst í byrjun nóvember og lýkur í maí 2027.

Hér má sjá leikdagana í undankeppninni
1. umferð: 4. og 5. nóvember 2026.
2. umferð: 7. og 8. nóvember 2026.
3. umferð: 10. og 11. mars 2027.
4. umferð: 13. og 14. mars 2027.
5. umferð: 5. og 6. maí 2027.
6. umferð: 9. maí 2027

Hér að neðan má sjá alla riðlanna í undankeppni EM.

1.riðill: Króatía, Holland, Litáen, Finnland.
2.riðill: Noregur, Austurríki, Georgía, Tyrkland.
3.riðill: Ísland, Serbía, Úkraína, Eistland.
4.riðill: Ungverjaland, Færeyjar, Svartfjallaland, Kósovó.
5.riðill: Slóvenía, Tékkland, Bosnía, Ísrael.
6.riðill: Frakkland, Pólland, Rúmenía, Lettland.
7.riðill: Þýskaland, Ítalía, Belgía, Slóvakía.
8.riðill: Svíþjóð, Norður Makedónía, Grikkland, Lúxemborg.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top