Hafdís reiknar með að spila á morgun
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hafdís Renötudóttir landsliðsmarkvörður og leikmaður Vals hefur ekkert leikið hvorki með íslenska landsliðinu né Val í Olís-deildinni eftir að hafa fengið höfuðhögg í landsleik Íslands gegn Svartfjallalandi í byrjun mánaðarins.

Hafdís Renötudóttir er hinsvegar í landsliðshópnum sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær fyrir síðustu tvo leiki Íslands í undankeppni Evrópumótsins sem fara fram í apríl.

Hafdís varð spurð að því á blaðamannafundinum sem HSÍ hélt hver staðan á henni væri og hvort hún gerði ráð fyrir því að vera með í verkefninu fyrst hún hafi verið valin.

,,Staðan á mér er góð og ég er byrjuð að æfa aftur. Þetta lítur vel út og ég sé fram á það að vera fara spila á laugardaginn og þá að ég verði klár í verkefnið í næsta mánuði," sagði Hafdís en Valur leikur loka leik sinn í Olís-deild kvenna á morgun gegn ÍBV í N1-höllinni að Hlíðarenda.

Valur hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og ÍBV er í 2.sæti deildarinnar.

Arnar Pétursson sagði einnig á blaðamannafundinum að Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram væri klár ef hún fengi kallið og væri meðvituð um stöðu Hafdísar en Ethel Gyða var kölluð inn í síðasta landsliðshóp eftir að Hafdís meiddist.

Hópurinn sem Arnar Pétursson valdi fyrir næsta landsliðsverkefni.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top