Íslenska kvennalandsliðið leikur mikilvægan leik gegn Færeyjum ytra í undankeppni EM í apríl og hefur HSÍ ákveðið að bjóða upp á pakkaferð fyrir áhugasama á leikinn en ferðin er dagana 8. - 9.apríl. Flogið verður með Icelandair beint til Færeyja 8.apríl og innifalið í pakkaferðinni er miði á Færeyjar-Ísland, gisting í eina nótt á Djurhuus Hotel og flogið til baka í gegnum Kaupmannahöfn 9. apríl. Þá er skutl til og frá flugvelli í Færeyjum innifalið í verðinu. Verð er 125.000kr en möguleiki er að framlengja ferð. Nánari upplýsingar veitir Daníel Franz á daniel@hsi.is Skráningafrestur er til hádegis í dag. Arnar Pétursson valdi í gær leikmannahóp sinn fyrir komandi leiki íslenska landsliðsins. Íslenska landsliðið er í harðri baráttu um laust sæti á Evrópumótið sem fram fer síðar á árinu en íslenska liðið tekur á móti Portúgal í lokaleik riðilsins hér á landi 12.apríl en sá leikur fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Frítt verður á leikinn á Ásvöllum í boði Besta bitans. Hægt að sækja sér miða í gegnum Stubb.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.