ÍBV verður án Andra í einvíginu gegn KA í það minnsta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Miðjumaðurinn ungi og efnilegi, Andri Erlingsson leikmaður ÍBV haltraði af velli í seinni hálfleik í leik Fram og ÍBV í 21.umferð Olís-deildar karla. Hann lék ekki með ÍBV í lokaumferðinni en stefndi á að koma til baka þegar úrslitakeppnin myndi hefjast.

Það varð hinsvegar ekki raunin þegar ÍBV tók á móti KA á miðvikudagskvöldið sem KA vann eftir tvíframlengdan leik. Andri sagði í samtali við Handkastið að það sé ljóst að hann verður í það minnsta ekkert með ÍBV í einvíginu gegn KA, hvort sem það endar á sunnudaginn eða fari í oddaleik. 

,,Staðan á mér er ekki frábær. Ég er með beinmar og sködduð liðbönd í ökklanum þannig það er alveg smá í að ég megi byrja að æfa aftur," sagði Andri í samtali við Handkastið.

Fari svo að ÍBV detti úr leik í 8-liða úrslitum gegn KA er ljóst að Andri hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV í bili í það minnsta en hann hefur skrifað undir samning við sænsku deildarmeistarana í Kristianstad ásamt Baldri Fritz Bjarnasyni leikmanni ÍR.

KA og ÍBV mætast öðru sinni í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins á sunnudaginn klukkan 14:50. Leikurinn verður í beinni útsendingu í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top