Vinstri hornamaðurinn, Lilja Ágústsdóttir leikmaður hjá Íslands- bikar- og Evrópubikarmeistara Vals hefur samið við þýska efstu deildarliðið BSV Sachsen Zwickau frá og með næsta keppnistímabili. Félagið greindi frá vistaskiptunum á heimasíðu sinni fyrr í dag. Landsliðskonan, Díana Dögg Magnúsdóttir lék með BSV Sachsen Zwickau frá 2020 til 2024 áður en hún gekk í raðir Blomberg-Lippe. Lilja sem verður 22 ára í næsta mánuði er á leiðinni út í annað skipti á ferlinum en hún gekk í raðir Lugi tímabilið 2022/2023 en annars hefur hún leikið með Val allan sinn feril. BSV Sachsen Zwickau er í næst neðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með átta stig en liðin gerði jafntefli gegn Oldenburg í síðustu umferð. Fyrir þann leik hafði liðið tapað fimm leikjum í röð. Þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni áður en umspil hefst. Valur greindi einnig frá vistaskiptum Lilju til Þýskalands á samfélagsmiðla síðu sinni í dag. ,,Lilju þarf ekki að kynna fyrir Völsurum enda uppalin að Hlíðarenda og tekið stór sem smá skref í handboltanum hér. Þrátt fyrir ungan aldur er hún að ljúka sínu sjöunda tímabili en hún spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki Vals tímabilið 2019-2020 og hefur jafnt og þétt stækkað hlutverkið sitt með Val. Hún hefur einnig spilað með A landsliðinu og öllum yngri landsliðum Íslands. Auk þess spilaði hún í Noregi og Danmörku á unga aldri þegar hún bjó þar með fjölskyldu sinni auk þess sem hún fór á lán til sænska úrvalsdeildarliðsins Lugi árið 2022 og spilaði þar um tíma. Lilja hefur verið frábær fyrirmynd fyrir yngri leikmenn, lagt mikið á sig og staðið sig geysilega vel í rauðu treyjunni. Við eigum eftir að sakna Lilju mikið en erum spennt og stolt af henni og óskum henni góðs gengis í næstu handboltaverkefnum! Stjórn handknattleiksdeildar Vals er stolt af því að enn einn efnilegur leikmaðurinn frá félaginu láti drauma sína rætast og haldi í atvinnumennsku. Framtíðin er hennar," segir í tilkynningunni frá Val. Áfram hærra!

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.