Tveir leikir fóru fram í í 26.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þar sem óvænt úrslit urðu þegar MT Melsungen vann eins marks sigur á Kiel á heimavelli 30-29. Í hinum leik kvöldsins vann Flensburg fjögurra marka sigur á Minden 35-31. Bence Imre var markahæstur í liði Kiel í dýru tapi liðsins gegn MT Melsungen með átta mörk og Eric Johansson kom næstur í liði Kiel með sex mörk. Aaron Mensing var markahæstur í liði Melsungen með sjö mörk og Timo Kastening skoraði fjögur mörk. Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk fyrir Melsungen úr tveimur skotum en Reynir Þór Stefánsson var ekki meðal markaskorara hjá liðinu. Melsungen fer upp í 7.sætið með sigrinum og er komið með 30 stig, sex stigum á eftir Kiel sem er í 4.sæti deildarinnar eftir tapið. Í Flensburg var Johannes Golla markahæstur með níu mörk úr níu skotum í fjögurra marka sigri liðsins. Emil Jakobsen kom næstur með sjö mörk ásamt Marko Grgic. Mats Korte var markahæstur í liði Minden með átta mörk úr átta skotum. Flensburg fer upp fyrir Fuchse Berlín í 2.sæti deildarinnar með 41 stig en Fuchse Berlín er stigi á eftir og á leik til góða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.