Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Grótta - Hörður (Föstudagur 18:30) / Sigurvegari: Grótta Grill 66 deildar slagur þessa umspils. Liðin sem enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar að mætast á Seltjarnarnesi. Grótta vann þá á heimavelli í fyrsta leik tímabilsins 37-31 en liðin gerðu svo jafntefli fyrir Vestan 32-32 í nóvember. Það er því óhætt að segja að við megum búast við spennandi einvígi en ég tel að Grótta muni eiga fyrsta höggið og komast í 1-0 með sigri í kvöld. Stjarnan - Fjölnir (Föstudagur 19:30) / Sigurvegari: Stjarnan Stjarnan hefur ekki unnið leik síðan á síðasta ári þegar þeir unnu Fram. Þeir duttu eftirminnilega út úr Powerade bikarkeppni HSÍ gegn Fjölni fyrr í vetur og hafa harma að hefna. Það voru fréttir úr Garðabænum í vikunni þar sem var tilkynnt að Hrannar Guðmundsson þjálfari þeirra myndi ekki klára tímabilið með þeim. Stjarnan mætir því til leiks með nýtt þjálfarateymi og ég held það muni kveikja undir þeim og þeir vinni Fjölni nokkuð örugglega og vinni langþráðan sigur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.