Það er eins og við þorum ekki að sækja þetta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Stjarnan og Fjölnir í undanúrslitum í umspili um laust sæti í Olís deildinni að ári. Leikið var í Mýrinni í Garðabæ. Fjölnir vann leikinn með einu marki 23-24 en leikur tvö fer fram í Grafarvoginum eftir helgi og eru Stjörnumenn komnir með bakið uppvið vegg og liðið verður að vinna næsta leik til að halda í vonina að leika í deild þeirra bestu á næsta tímabili.

Handkastið ræddi við nýráðinn þjálfara Stjörnunnar, Sverri Eyjólfsson eftir leik í Garðabænum í kvöld og var Sverrir eðlilega svekktur eftir leik.

,,Það er bara hálfleikur en þetta eru vissulega mikil vonbrigði og við þurfum bara skoða það hvað fer úrskeiðis hér í kvöld og vera aðeins stærri. Við erum að klikka á mörgum dauðafærum og þetta er svona eins og við þorum ekki alveg að sækja þetta og við þurfum að skoða það hjá okkur."

Allt viðtalið við Sverri má sjá í spilaranum hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top