Þetta einvígi er ekki búið
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Stjarnan og Fjölnir í undanúrslitum í umspili um laust sæti í Olís deildinni að ári. Leikið var í Mýrinni í Garðabæ. Fjölnir vann leikinn með einu marki 23-24 en leikur tvö fer fram í Grafarvoginum eftir helgi.

Handkastið ræddi við Guðmund Rúnar Guðmundsson, þjálfara Fjölnis eftir leik í Garðabænum í kvöld.

,,Þetta er frábær tilfinning og sem minna liðið mætum við hingað og eigum bara frábæran leik og höldum áfram frá því í vetur svo þetta er bara frábært."

Fjölnir vann Stjörnuna einnig í bikaranum í vetur og virðist Stjarnan henta Fjölnismönnum ágætlega.

,,Þetta er hörku lið og allt það en það er eitthvað sem hentar við þá en ég veit ekki hvað það er en þetta einvígi er ekki búið."

Allt viðtalið við Guðmund Rúnar má sjá í sjónvarpinu hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top