Þorsteinn Gauti Hjálmarsson leikmaður Íslandsmeistara Fram og finnska landsliðsins sneri til baka í leikmannahóp Fram í gærkvöldi þegar liðið tapaði gegn FH í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Þorsteinn Gauti hafði ekkert leikið með Fram í undanförnum leikjum í Olís-deild karla en hann meiddist á ökkla í leik gegn KA í 17.umferð Olís-deildarinnar. Þorsteinn Gauti þurfti á dögunum að draga sig úr landsliðshópi Finna en hann er hinsvegar kominn aftur og skoraði tvö mörk úr fjórum skotum í tveggja marka tapi Fram gegn FH í gærkvöldi. Liðin mætast í Úlfarsárdalnum aftur næstkomandi mánudag en Íslandsmeistarar Fram, eru með bakið upp við vegg og þurfa nauðsynlega á sigri að halda ætli þeir sér ekki í snemmbúið sumarfrí.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.