Fjölnismenn komu, sáu og sigruðu Stjörnuna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Í kvöld mættust Stjarnan og Fjölnir í undanúrslitum í umspili um laust sæti í Olís deildinni. Leikið var í Mýrinni í Garðabæ.

Stjörnumenn byrjuðu mun betur og komust fljótt í 3-0. Stuttu seinna voru þeir komnir í 7-3. Þetta leit vel út hjá þeim og voru þeir yfirleitt með 3-4 marka forskot lengi vel. Seinustu mínútur fyrri hálfleiks voru Fjölnis menn svo mjög sprækir og náðu þeir að minnka muninn í 1 mark áður en dómarinn flautaði fyrri hálfleikinn. 13-12 var staðan í hálfleik.

Fyrstu 20 mínúturnar í seinni hálfleik voru Stjarnan áfram í bílstjórasætinu og leiddu leikinn. Fjölnismenn voru aldrei langt undan þó og kom mjög góð framganga þeirra örugglega fjölmörgum á óvart. Á 50. mínútu jöfnuðu svo Fjölnis menn í 19-19. Síðustu 10 mínútur leiksins voru jafnar og æsispennandi. Fjölnismenn komust svo í fyrsta skipti yfir í leiknum þegar 3 mínútur voru eftir í stöðunni 21-22. Brynjar Óli Kristjánsson skoraði svo síðasta mark leiksins og breytti stöðunni úr 23-23 yfir í 23-24 þegar 40 sekúndur voru eftir. Stjörnumenn náðu ekki að jafna leikinn og tryggja sér framlengingu.

Frækinn og glæsilegur sigur hjá gestunum úr Grafarvogi. Fjölnismenn eru heldur betur búnir að hleypa miklu lífi í þetta einvígi. Áhugavert verður að sjá hvernig Stjörnumenn svara þessu tapi í næsta leik í Egilshöll.

Hjá Fjölni var Aðalsteinn Aðalsteinsson markahæstur með 7 mörk. Bergur Bjartmars varði 16 skot.

Hjá Stjörnunni var Benedikt Marinó og Ísak Logi markahæstir með 4 mörk. Sigurður Dan varði 17 skot.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top