Handkastið fjallaði um það í byrjun febrúar mánaðar að Viktor Gísli Hallgrímsson væri orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach en Viktor Gísli er á sínu fyrsta ári hjá Barcelona eftir að hafa verið hjá Nantes í Frakklandi og Wisla Plock í Póllandi undanfarin ár. Viktor Gísli var spurður út í þennan orðróm í samtali við Handkastið á dögunum. ,,Ég sá frétt um þetta hjá ykkur í Handkastinu en ég er ekki í neinum samningsviðræðum við Gummersbach. Ég tala reglulega við Guðjón Val (þjálfara Gummersbach). Hann hefur hjálpað mér mikið á mínum ferli síðustu sex ár." Viktor Gísli viðurkennir að það hafi ekkert verið óeðlilegt að hann hafi verið orðaður við Gummersbach miðað við tengingar hans við Guðjón Val. ,,Að auki vantar þeim vantar markmann og ég er að renna út af samningi við Barcelona sumarið 2027. Það er ekkert meira en það í grunninn. Ég og Guðjón Valur erum í miklu sambandi. Hann hefur hjálpað mér mikið með ákvörðunartöku, meiðslum og öðru slíku og við höldum góðu sambandi," sagði Viktor Gísli og bætti við að Guðjón Valur hafi verið fyrirliði sinn í íslenska landsliðinu í eitt og hálft ár áður en Guðjón Valur lagði handboltaskóna á hilluna. Viktor Gísli ítrekaði svo að hann væri ekki með neitt samningstilboð á borðinu frá Gummersbach. ,,Ég er bara að njóta þess að vera í Barcelona. Þetta er draumafélagið mitt og ég mun reyna taka þessa ákvörðun eins seint og ég get til að gera hana eins skynsamlega og hægt er. Ég ætla reyna fresta því að taka þessa ákvörðun eins lengi og ég get. Ég er að fókusa að klára tímabilið og síðan hefjast kannski einhverjar pælingar. Eins og ég segi, Barca er draumafélagið og það var alltaf stefnan á að fara þangað. Ég held að ungur Viktor Gísli myndi finnast það skrítið að Viktor Gísli myndi fara eftir eitt ár í Barcelona." En þegar samningurinn þinn rennur út við Barcelona sumarið 2027. Sérðu fyrir þér að þú viljir reyna vera áfram í Barcelona eða myndir þú vilja reyna fyrir þér í þýsku úrvalsdeildinni? ,,Mig hefur aldrei langað í þýsku úrvalsdeildina eitthvað þannig séð. Hún hefur aldrei heillað mig. Hún er vissulega besta deild í heimi en mig langar að spila í Meistaradeildinni og markmiðið er að vinna Meistaradeildina en ekki þýsku deildina," sagði Viktor Gísli að lokum í samtali við Handkastið.Reyna njóta í Barca

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.