Tumi Steinn markahæstur í mikilvægum sigri
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tumi Steinn Rúnarsson var markahæstur í liði Alpla Hard með sjö mörk, þar af eitt úr vítakasti í sigri liðsins í gærkvöldi gegn Aon Fivers í austurrísku úrvalsdeildinni.

Alpla Hard vann leikinn 28-26 á útivelli en Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað hjá liðinu. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard sem er á toppi austurrísku deildarinnar eftir sigurinn í gær.

Alpla Hard er með 23 stig eftir 19 leiki en nokkur lið eiga enn eftir að spila í 19. umferðinni. Linz er í 2.sæti deildarinnar og geta endurheimt toppsætið með sigri í sínum leik. Hörð toppbarátta er í deildinni en fjögur lið eru í baráttu um deildarmeistaratitilinn.

Aon Fivers var einu marki yfir í hálfleik 16-15 en í stöðunni 21-21 voru það Alpla Hard menn sem voru með undirtökin í leiknum og unnu að lokum tveggja marka sigur en Alpla Hard komst aldrei meira en tveimur mörkum yfir í seinni hálfleiknum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top