Ágúst Elí stórkostlegur þegar KA sópaði ÍBV út
Egill Bjarni Friðjónsson)

KA tók á móti ÍBV í öðrum leik þeirra í 8 liða úrslitum í úrslitakeppni Olís deildar karla fyrir norðan í dag.

KA vann fyrri leik liðanna í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn í tvíframlengdum leik svo Eyjamenn máttu alls ekki tapa í dag, annars væru þeir komnir í sumarfrí.

Það var jafnt á nánast öllum tölum hjá liðunum í fyrri hálfleik og skiptust þau á að hafa forystu. Það var svo undir lok fyrri hálfleiks sem KA náði aðeins að slíta sig frá ÍBV og leiddu með tveim mörkum í hálfleik, 13-11.

KA komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu fimm marka forskoti eftir einungis nokkra mínútna leik, 17-12. Eyjamenn fóru þá í sína frægu fimm einn vörn og náðu hægt og rólega að vinna sig aftur inn í leikinn. Þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum var staðan orðin, 23-23 og ljóst það yrði æsispennandi lokamínútur framundan.

ÍBV fékk tækifæri til að komast einu marki yfir þegar um 100 sekúndur voru eftir af leiknum en Ágúst Elí Björgvinsson varði vítið frá Hákoni Daða Styrmissyni. ÍBV fékk svo aftur tækifæri til að komast yfir þegar um 20 sekúndur voru eftir en aftur varði Ágúst Elí, nú frá Nökkva Snæ.

Það var svo Dagur Gautason sem tryggði KA mönnum sigurinn með marki þegar 7 sekúndur voru til leiksloka og allt varð vitlaust í KA heimilinu. KA eru því á leið í undanúrslit en Eyjamenn eru komnir í sumarfrí.

Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í kvöld og varði alls 19 skot eða 45% markvörslu. Inn í þessu voru 3 víti sem hann varði einnig á mikilvægum augnablikum. Einar Birgir Stefánsson og Dagur Gautason voru markahæstir hjá KA í kvöld með 5 mörk en hjá ÍBV var Dagur Arnarsson markahæstur með 6 mörk.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top