Franskur landsliðsmaður orðaður við Flensburg
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Franski landsliðsmaðurinn Thibaud Briet, sem leikur með HBC Nantes, er orðaður við þýska stórliðið SG Flensburg-Handewitt samkvæmt heimildum Rthandball.

Handkastið greindi frá því í gær að Costa-bræðurnir, Martim og Francisco Costa væru einnig orðaðir við Flensburg en áður hefur verið greint frá því að landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson og þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins væru í viðræðum við Flensburg.

Briet, sem hefur verið einn af lykilmönnum Nantes á undanförnum tímabilum, er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2028. Þrátt fyrir það er talið að Flensburg fylgist grannt með stöðu mála, sérstaklega í ljósi hugsanlegra breytinga á leikmannahópi sínum.

Samkvæmt sömu heimildum gæti möguleg sala á danska leikstjórnandanum Simon Pytlick til Füchse Berlin haft áhrif á framvinduna. En ef Simon Pytlick fer fyrr til Berlínar heldur en stendur til í dag er hugsanlegt að Flensburg reyni að kaupa upp samning Briet hjá Nantes.

Ekki hefur verið staðfest hvort formleg viðræða hafi átt sér stað milli félaganna, en ljóst er að Briet er eftirsóttur á leikmannamarkaðnum og gæti orðið lykilviðbót hjá Flensburg fari svo að félagið missi einn af sínum mikilvægustu leikmönnum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top