Íslenska þríeykið á toppinn í Þýskalandi
INA FASSBENDER / AFP

Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf fjórar stoðsendingar í öruggum þrettán marka sigri Blomberg-Lippe gegn SV Union Halle-Neustadt, 33-20 á útivelli í gærkvöldi í næst síðustu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Blomberg-Lippe hafði fjögurra marka forystu í hálfleik 13-17 en Íslendingaliðið var töluvert sterkari aðilinn í leiknum og vann lokakaflann í leiknum 8-2 og breytti stöðunni úr 28-25 í 20-33.

Með sigrinum kom Blomberg-Lippe upp fyrir Borussia Dortmund sem á þó leik til góða á Blomberg Lippe fyrir lokaumferðina. Sama hvernig leikur Borussia Dortmung fer gegn Oldenburg á miðvikudaginn er ljóst að það verður úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn næstkomandi laugardag þegar Blomberg-Lippe tekur á móti Borussia Dortmund í lokaumferðinni.

Andrea Jacobsen skoraði eitt mark fyrir þýska liðið en Díana Dögg Magnúsdóttir komst ekki á blað en gaf sex stoðsendingar.

Það verður spennandi að sjá sigurinn í gær hjálpi Íslendingaliðinu að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Þýskalandi áður en úrslitakeppnin hefst síðan um miðjan apríl.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top