Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Leipzig tók á móti Eisenach í fyrsta leik dagsins. Leiknum lauk með jafntefli, 29-29 eftir að staðan hafði verið, 15-12, Leipzig í vil í hálfleik. Blær Hinriksson skoraði 6 mörk fyrir Leipzig í dag en Franz Samper var markahæstur á vellinum með 8 mörk. Leipzig eru í 17.sæti deildinnar með 10 stig eftir þetta jafntefli, tveim stigum frá öruggu sæti í deildinni. Göppingen fékk Erlangen í heimsókn í dag. Andri Már Rúnarsson og Viggó Kristjánsson voru í eldlínunni hjá Erlangen í leiknum og Ýmir Örn Gíslason var á sínum stað í liði Göppingen. Göppingen sigraði leikinn með þrem mörk, 27-24, eftir að hafa verið þrem mörkum undir í hálfleik, 11-14. Andri Már Rúnarsson skoraði 4 mörk í dag og Viggó Kristjánsson skoraði 3 fyrir Erlangen. Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Göppingen. Í lokaleik dagsins tók Stuttgart á móti Lemgo. Stuttgart leiddu 16-14 í hálfleik en leiknum lauk með 32-32 jafntefli þar sem Lemgo skoraði þrjú síðustu mörk leiksins og náði að sækja eitt stig. Lenny Rubin var markahæstur í liðið Stuttgart með 9 mörk en hjá Lemgo var Samuel Zehnder markahæstur með 9 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.