Andri Snær Stefánsson var gríðarlega sáttur og létt að hafa náð að vinna ÍBV 2-0 í einvíginu og vera kominn áfram í undanúrslitin. ,,Við elskum að spila við ÍBV og þeir pottþétt við okkur líka, þetta eru alltaf stemmningsleikir og stuðlið." Andri segir að hann eigi sér enga óska mótherja í undanúrslitum og fókusinn fari nú bara í að njóta þess að hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum. ,,Við lögðum gríðarlega mikið í þetta einvígi og hverja við fáum í undanúrslitum kemur svo bara í ljós." KA voru komnir með fimm marka forskot sem þeir misstu svo niður þannig það reyndi gífurlega á karakterinn í liðinu og var Andri Snær gríðarlega ánægður með sitt lið að hafa staðist þetta áhlaup. Allt viðtalið má sjá hér að neðan:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.