Orri Freyr markahæstur gegn Þorsteini Leó
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Orri Freyr Þorkelsson átti stórleik með liði sínu Sporting þegar hann skoraði 11 mörk í leik gegn Porto og var Orri Freyr markahæstur á vellinum. Frammistaða hans skipti sköpum fyrir liðið í leiknum en Sporting vann leikinn með þremur mörkum 33-30.

Um var að ræða fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í Portúgal þar sem fjögur efstu liðin eftir deildarkeppnina leika í riðli þar sem heildarstigum liðanna í deildarkeppninni hefur verið deilt með tveimur. Sporting er því á toppi riðilsins eftir sigurinn í gær með 36 stig en Porto er áfram með 31 stig.

Benfica og Aguas Santas mætast í dag klukkan 14:00 þar sem Stiven Tobar Valencia verður í eldlínunni.

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Porto en Antonio Llamazares og Rui Silva voru markahæstir með fimm mörk hvor. Hjá Sporting voru bræðurnir Francisco Costa með átta mörk og Martim Costa með sex mörk.

Handbolti.is greinir frá því í morgun að leikurinn gæti haft afdrifaríkar afleiðingar í föl með sér en leikurinn seinkaðist um 20 mínútur. ,,Megna tækju lagði af klór eða öðru ertandi efni í búningsklefa Sporting-liðsins. Þurfti þjálfari liðsins, Richardo Costa, og línumaður liðsins, kallaður Moga, að leita aðstoðar hjá lækni vegna óþægindi sem þeir fundi fyrir. Stýrði Costa ekki liðinu og Moga var ekki með í leiknum," segir í frétt Handbolta.is.

Þá segir enn fremur að nokkrir leikmenn Sporting hafi kvartað yfir óþægindum meðal annars í hálsi, en létu sig hafa það að taka þátt í leiknum sem sem hófst síðar en til stóð vegna þessarar óvæntu og óþægilegu uppákomu. Flestir leikmenn Sporting skiptu um fatnað og reimuðu á sig skóna fyrir utan klefann sem var lokað.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top