Sjáðu draugamark Leós Snæs sem Svavar dæmdi löglegt
Sævar Jónasson

Það var ótrúleg uppákoma í leik HK og Vals í dag þegar Valur vann fjögurra marka sigur 28-32 í Kórnum í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins.

Með sigrinum sendi Valur, HK-inga í sumarfrí og tryggðu sér í leið farseðilinn í undanúrslitin þar sem liðið mætir KA sem vann einvígi sitt gegn ÍBV 2-0 einnig.

Í stöðunni 25-30 fyrir Val skömmu fyrir leikslok dæmdi Svavar Ólafur Pétursson mark fyrir HK sem aldrei átti að standa en Leó Snær Pétursson skaut þá boltanum í þverslánna og þaðan fór boltinn út í teiginn. Á einhvern ótrúlegan hátt dæmdi Svavar Ólafur mark.

Eðlilega voru Valsmenn gáttaðir á ákvörðun Svavars sem er stundum engum líkur og sjaldan dugar að deila við Svavar þegar hann hefur tekin ákvörðun um eitthvað. Það sýndi sig vel í þessu atviki því þrátt fyrir að Valsarar í fleirtölu hafi bent honum á að þetta hafi alls ekki verið mark - þá stóð hann fast á sínu og HK-ingar fögnuðu marki sínu sem dugði þó ekki til í leiknum.

Atvikið er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top