Gróttu stelpur með 13 marka sigur á Víking í umspilinu
Eyjólfur Garðarsson

Í dag mættust Grótta og Víkingur í undanúrslitum umspils um að komast upp í Olís deild kvenna. Leikið var á Seltjarnarnesi.

Fyrstu 10 mínútur leiksins var jafnræði með liðunum en eftir það fór að slitna á milli liðanna. Eftir rúmt korter var staðan orðin 7-3 fyrir heimakonum. Grótta náði mest 6 marka forskoti í fyrri hálfleik en þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks var staðan 12-8. Verðskulduð forysta hjá Gróttu.

Gróttu stelpur byrjuðu seinni hálfleik af fítons krafti og fóru fljótt í stöðuna 15-9. Þegar korter var eftir var staðan orðin 22-13 og leikurinn í raun búinn. Eftirleikurinn var auðveldur fyrir heimakonur sem slökuðu ekkert á klónni og uppskáru sanngjarnan og öruggan sigur. Nokkuð ljóst að þær eru áþjáðar í því að reyna að gera allt sem í þeirra valdi stendur að fara upp í efstu deild. Víkings stelpur áttu ekki sinn besta dag en taka verður með í reikninginn að hjá þeim vantar leikstjórnandann Hafdísi Shizuku sem er meidd.

Hjá Gróttu var Katrín Scheving markahæst með 7 mörk. Andrea og Anna Karólína vörðu samtals 18 skot í markinu.

Hjá Víking var Valgerður Elín Snorradóttir markahæst með 4 mörk. Þyrí Erla og Klaudia vörðu samtals 8 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top