Voða auðvelt að horfa á dómgæsluna með HK augum
Sævar Jónasson

Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari deildarmeistara Vals var að vonum ánægður með fjögurra marka sigur Vals gegn HK í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitunum. Með sigrinum tryggði Valur sér sæti í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitlinn og mætir þar KA sem sló út ÍBV fyrr í dag.

,,Þetta var hörkuleikur og járn í járn allan tímann. HK spilaði virkilega vel í þessu einvígi og voru mjög erfiðir. Mér fannst þegar líða fór á leikinn vera meira á tanknum hjá okkur og við náðum að rúlla á aðeins fleiri mönnum. Varnarleikurinn var góður og Björgvin í markinu einnig," sagði Gústi Jó. meðal annars í viðtali við Handkastið eftir leik.

VALUR SENDI HK Í SUMARFRÍ

Mikið var rætt og ritað um dómgæsluna í fyrri leik liðanna sem Valur vann eftir framlengdan leik. Þar fannst mönnum hallað verulega á HK-inga undir lok leiks sem hjálpaði Val að komast til baka og tryggja framlengingu.

,,Eftir að hafa skoðað dómgæsluna í fyrri leiknum, þá er voða auðvelt að horfa á þetta með HK augum. Það er fullt af atriðum í þeim leik eins og gengur og gerist. Dómgæslan í kvöld var toppklassi. Þetta var góður handbolti og góð auglýsing fyrir handboltann," sagði Ágúst meðal annars.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top