Átta liða úrslitin klár í Meistaradeild kvenna – Gloria heldur áfram að skrifa söguna

Umspili Meistaradeildar kvenna lauk um helgina þegar síðustu fjögur liðin tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum. Það urðu FTC, Gloria Bistrita, Team Esbjerg og Odense sem fylgdu stórliðunum fjórum sem þegar höfðu tryggt sér beint sæti áfram. Öll fjögur lið sem unnu fyrri leikina héldu forskoti sínu og fóru áfram.

Úrslit helgarinnar

FTC - Dortmund 27-27 (12-12)
Markahæstar: Petra Simon 9 mörk (FTC) - Alina Grijseels 8 mörk (Dortmund)
FTC sigraði einvígið samanlagt 58-52
FTC þurfti að hafa verulega fyrir því að klára einvígið gegn Dortmund. Eftir sex marka sigur í fyrri leiknum virtist staðan þægileg, en Dortmund mætti af miklum krafti til Ungverjalands og komst snemma yfir bæði 3:1 og 4:2.
FTC var lengi í vandræðum í sókninni og skoraði aðeins eitt mark á fyrstu níu mínútunum. Smám saman fór þó Petra Simon að taka yfir leikinn, og undir lok fyrri hálfleiks fór heimaliðið að finna taktinn. Liðin fóru jöfn inn í hálfleik, 12:12, en þegar Emma Olsson fékk sínu þriðju tveggja mínútna brottvísun og þar með rautt spjald snerist leikurinn endanlega. FTC nýtti sér það fullkomlega, fór í 4:0 kafla og lokaði svo leiknum með sterkri markvörslu frá Lauru Glauser. Jafntefli, 27:27, dugði FTC og liðið fór áfram samanlagt 58:52.

Gloria Bistrita - Ikast 37-28 (16-15)
Markahæstar: Danila So Delgado 14 mörk (Gloria Bistrita) - Jamina Roberts 7 mörk (Ikast)
Gloria Bistrita sigraði samanlagt 72-62
Gloria Bistrita skrifaði sögu félagsins með því að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrsta sinn. Eftir eins marks sigur í fyrri leiknum mætti rúmenska liðið af miklu öryggi til seinni leiksins á heimavelli og var einfaldlega sterkari aðilinn þegar leið á leikinn.
Ikast hélt sér inni í leiknum framan af, en þegar kom inn á síðari hluta seinni hálfleiks tók Gloria öll völd á vellinum. Renata de Arruda hélt áfram að verja stórkostlega og Danila So Delgado var aftur nánast óstöðvandi í sókninni. Hún skoraði 14 mörk og fór upp í annað sæti markahæstu leikmanna keppninnar með 104 mörk.
Ikast, sem hafði tapað fjórum leikjum í röð í Meistaradeildinni, náði aldrei að svara almennilega þegar Gloria jók forskotið. Rúmenska liðið vann einvígið nokkuð örugglega samanlagt og heldur áfram að skrifa sögu á aðeins sínu öðru tímabili í keppninni.

Esbjerg - Podravka 31-29 (15-16)
Markahæstar: Elin Hansson 9 mörk (Esbjerg) - Sara Senvald 9 mörk (Podravka)
Esbjerg vann samanlagt 68-55
Esbjerg fór inn í seinni leikinn gegn Podravka með ellefu marka forskot eftir stórsigur í Króatíu. Það var því aldrei raunveruleg hætta á ferð þó leikurinn hafi verið jafnari en margir bjuggust við.
Esbjerg byrjaði vel og komst í 4:1 með þremur mörkum frá Henny Reistad, en síðan fór að síga á ógæfuhliðina. Mistök í sókninni og kæruleysi í varnarleiknum leyfðu Podravka að vinna sig aftur inn í leikinn og króatíska liðið leiddi í hálfleik og náði mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik.
Vendipunkturinn kom þegar Anna Kristensen steig upp í markinu. Hún endaði með 17 varin skot og tæplega 52 prósenta markvörslu, sem breytti algjörlega leikmyndinni á lokakaflanum. Esbjerg vann að lokum 31:29 og samanlagt 68:55, sem tryggði liðinu sæti í átta liða úrslitum fimmta árið í röð. Elin Hansson var markahæst með níu mörk, á meðan Henny Reistad bætti við sex og er nú komin með 116 mörk í keppninni.

Odense - DVSC 34-34 (13-16)
Markahæstar: Thale Rushfeldt Deila 9 mörk (Odense) - Petra Tóvizi 6 mörk (DVSC)
Odense vann samanlagt 71-66
Odense hafði unnið fyrri leikinn gegn DVSC Schaeffler með fimm marka mun, en seinni leikurinn var mun jafnari.
DVSC byrjaði af miklum krafti og komst snemma í 6:2. Alicia Toublanc og Kristín Þorleifsdóttir leiddu sóknarleik ungverska liðsins og staðan var orðin 15:10 fyrir gestina skömmu fyrir hálfleik. Þá fór aðeins að örla á spennu í höllinni.
Odense vann sig þó hægt og rólega aftur inn í leikinn í seinni hálfleik. Þegar 40 mínútur voru liðnar var staðan orðin 22:22 og þá var ljóst að danska liðið myndi ekki missa þetta niður. Thale Rushfeldt Deila fór fyrir sínu liði með níu mörk og Yara Ten Holte varði 14 skot, þar á meðal mikilvæg skot á lokakaflanum.
Andrea Aagot Hansen tryggði svo Odense jafntefli, 34:34, þegar aðeins 22 sekúndur voru eftir. DVSC fékk tækifæri til að stela sigrinum á lokasekúndunum, en Océane Sercien-Ugolin klúðraði vítakasti. Jafnteflið dugði Odense og liðið fór áfram samanlagt 71:66.

Þar með er oðið ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitunum sem fara fram daganna 18.-19.apríl og 25.-26.apríl.

Odense - Györ
Gloria Bistrita - Brest
FTC - Metz
Esbjerg - CSM Búkaresti

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top