Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í HC Oppenweiler/Backnang þurftu að sætta sig við enn eitt tapið í þýsku B-deildinni í gær þegar liðið tapaði gegn Großwallstadt með tveimur mörkum á heimavelli, 29-27. Tjörvi Týr skoraði tvö mörk í leiknum en liðið er á botni þýsku B-deildarinnar með tvö stig eftir 25 leiki en liðið hefur enn ekki unnið leik á tímabilinu. Fyrrum liðsfélagi Tjörva hjá Val, Stiven Tobar Valencia skoraði þrjú mörk fyrir Benfica í öruggum sigri liðsins á Águas Santas í 1. umferð úrslitakeppninnar í Portúgal þar sem fjögur efstu lið deildarinnar mætast. Benfica vann leikinn með átta mörkum 35-27 eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik 17-12. Í Frakklandi skoraði Sveinn Jóhannsson þrjú mörk í níu marka sigri Chambéry 33-24 gegn Sélestat á heimavelli í frönsku úrvalsdeildinni. Chamberý var fimm mörkum yfir í hálfleik 19-14 en liðið er í 5.sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 24 stig. Sex stig er í næsta lið, Limoges sem er í 4.sætinu. Sveinn er á sínu fyrsta ári með Chamberý eftir að hafa leikið í Noregi á síðustu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.