Erum með bakið upp við þennan fræga vegg – Munum selja okkur dýrt á Ísafirði
Eyjólfur Garðarsson)

Við heyrðum aðeins í Davíð Erni Hlöðverssyni þjálfara Gróttu eftir tapið í gær á móti Herði á Seltjarnarnesi. Tap Gróttumanna kom mörgum á óvart en einvígið er bara rétt byrjað. Gróttu menn mæta væntanlega dýrvitlausir vestur á Ísafjörð og ætla sér að knýja fram oddaleik. Davíð Örn tjáði sig aðeins um leikinn og næsta leik á Ísafirði sem fer fram miðvikudaginn 1. apríl kl. 19:00.

"Við hófum leikinn af krafti og var mikill andi í okkar mönnum. Fyrri hálfleikur var nokkuð vel spilaður af okkar hálfu og hefðum eflaust geta leitt með meiri mun. Varnarleikurinn var þéttur en hefðum mögulega getað keyrt leikinn aðeins meira upp. Seinni hálfleikurinn var frekar kaflaskiptur hjá okkur. Byrjuðum seinni hálfleikinn einum færri og Harðverjar náðu því fljótlega að minnka muninn þar sem færanýtingin hjá okkur var heldur ekki alveg nógu góð. Í stöðunni 26-22 okkur í vil og 11 mínútur eftir þá skelltu markmenn Harðverja í lás og þeir gengu á lagið. Nú erum við með bakið upp að þessum fræga vegg sem er kannski ágætt. Við munum heldur betur selja okkur dýrt á miðvikudaginn kemur og fá þá síðan til okkar í oddaleikinn"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top