Haukur í liði umferðarinnar
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP)

26. Umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í gær er þrír leikir fóru fram. Magdeburg situr á toppi deildarinnar með sjö stiga forskot á lið Flensburg sem situr í öðru sæti.

Að vana gefur Daikin handball út lið umferðarinnar og lítur það svona út:

Mike Jensen(Rhein-Neckar Löwen)

Mike Jensen markvörður Rhein-Neckar Löwen átti góðan leik er lið hans vann stórsigur á liði Wetzlar. Jensen varði 15 skot sem samsvaraði 48,4% hlutfallsmarkvörslu.

Mats Korte(Minden)

Mats Korte átti góðan leik fyrir lið sitt Minden er þeir töpuðu gegn Flensburg. Korte skoraði 8 mörk úr 8 tilraunum í leiknum.

Dominik Solak(Eisenach)

Dominik Solak átti fínan leik er lið hans Eisenach gerði jafntefli við Blæ Hinriks og félaga í Leipzig. Solak skoraði 6 mörk auk þess að hafa gefið 5 stoðsendingar.

Haukur Þrastarson(Rhein-Neckar Löwen)

Haukur Þrastarson átti stórleik fyrir lið sitt Rhein-Neckar Löwen er þeir unnu stórsigur á liði Wetzlar. Haukur skoraði 15 mörk í leiknum auk þess að hafa gefið 8 stoðsendingar.

Mathias Gidsel(Füchse Berlin)

Mathias Gidsel átti góðan leik er lið hans Füchse Berlin tapaði gegn íslendingaliði Magdeburg. Mathias skoraði 11 mörk í leiknum auk þess að hafa gefið 3 stoðsendingar.

Bence Imre(THW Kiel)

Bence Imre átti góðan leik fyrir lið sitt Kiel er liðið tapaði óvænt gegn Melsungen. Bence skoraði 8 mörk auk þess að hafa gefið 1 stoðsendingu.

Johannes Golla(Flensburg)

Johannes Golla línumaður Flensburg átti góðan leik þegar lið hans vann Minden. Golla skoraði 9 mörk úr 9 tilraunum auk þess að hafa gefið 3 stoðsendingar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top