Orri Freyr lýsir ótrúlegri atburðarrás í Portúgal
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Það voru heldur óeðlilegar aðstæðurnar sem biðu leikmanna toppliðs Sporting í Portúgal fyrir leik liðsins gegn Porto á útivelli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem fram fór um helgina.

Handbolti.is greindi fyrst frá að megna stækju lagði af klór eða öðru ertandi efni í búningsklefa Sporting-liðsins fyrir leikinn. Orri Freyr Þorkelsson landsliðsmaður er leikmaður Sporting en hann endaði sem markahæsti leikmaður leiksins með ellefu mörk í þriggja marka sigri, 33-30.

Orri Freyr markahæstur í sigri gegn Þorsteini Leó

Aðstæðurnar fyrir leik höfðu hinsvegar mikil áhrif bæði á undirbúning liðsins og á leikinn sjálfan en þjálfari Sporting, Richardo Costa gat ekki stýrt liðinu í leiknum og línumaður liðsins Moga, þurftu báðir að leita aðstoðar hjá lækni vegna óþægindi sem þeir fundi fyrir. Moga spilaði ekki með Sporting ekki í leiknum.

,,Þegar við komum í klefann tókum við strax eftir því að það var einhver mjög skrítin og óþægileg lykt í klefanum sem olli því að nokkrir leikmenn fundu fyrir óþægindum í hálsi og augum," sagði Orri Freyr Þorkelsson í samtali við Handkastið þegar hann var spurður út í atvikið.

,,Nokkrir voru rauðir í augunum og fengu augndropa. Svo eins og er búið að koma fram þá fengu Ricardo þjálfari og Moga svima og vanlíðan og þurftu aðstoð sjúkraliða. Þeir tóku ekki þátt í leiknum," sagði Orri Freyr sem segir að þetta hafi ekki haft áhrif á sig sjálfan enda skal engan undra, Orri Freyr var stórkostlegur í leiknum og var markahæstur eins og fyrr segir.

,,Mér leið vel, ég vil undirstrika það að ég vill ekki að saka neinn um neitt En miðað við aðstæður og að tveir mikilvægir menn voru ekki með okkur þá gaf þetta okkur kannski smá auka kraft í leiknum."

,,Þetta var mjög sérstakt. Ég fór inn i klefa og maður fann að þetta var eitthvað mjög undarlegt. Þetta var nánast eins og að labba á vegg," sagði Orri en leikmenn Sporting gátu ekki notað búningsklefann fyrir leik og klæddu sig á göngum íþróttahúsins í Porto.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top