Sakað um að hafa tapa leik viljandi
Michael Hundt / AFP

Danska handboltaliðið Bjerringbro-Silkeborg hefur verið sakað um að hafa ekki lagt sig fram til sigurs í leik gegn botnliði deildarinnar, Grindsted í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar um helgina.

Leikurinn fór þannig að Bjerringbro-Silkeborg var með góða forystu í fyrri hálfleik og var liðið þremur mörkum yfir í hálfleik 18-15 og virtist hafa fulla stjórn á gangi mála. Í seinni hálfleik breyttist myndin hins vegar verulega.

Liðið náði fimm marka forystu í stöðunni 20-15 en þá missti liðið taktinn og nú velta menn því fyrir sér hvort það hafi verið með ráðum gert. Liðið gerði fjölda mistaka og nýtti færin sín illa, sem leiddi til þess að Grindsted náði að snúa leiknum sér í vil og vann að lokum eins marks sigur 27-26.

Sérstaklega vakti athygli hversu illa sóknarleikur liðsins gekk undir lokin. Á löngum kafla skoraði liðið mjög lítið og virtist eiga erfitt með að skapa sér góð færi. Þá fóru nokkur skot langt fram hjá marki og mistök í leiknum voru óvenju mörg.

Handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard telur frammistöðuna vera svo slaka að erfitt sé að útskýra hana með eðlilegum hætti. Hann segir að eftir að hafa horft á leikinn, sérstaklega lokakaflann, sé erfitt að komast að annarri niðurstöðu en að liðið hafi mögulega ekki haft mikinn áhuga á að vinna leikinn.

„Á síðustu tuttugu mínútunum skorar BSH fjögur mörk. Það er á allan hátt, eftir að hafa séð leikinn, óafsakanleg frammistaða í leik sem leikmenn höfðu annars fullkomna stjórn á. Það er erfitt að fá ekki þá tilfinningu að BSH hafi ekki viljað fá stig út úr leiknum,“ sagði Nyegaard.

„Sum skotin eru beinlínis vandræðaleg. Þetta eru færir leikmenn eins og Rahbek, Læsø og Øris sem skjóta bara alveg fram hjá eða taka hugsunarlaus skot. Það er það sem styrkir þessa tilfinningu, auk þess sem gerður er fjöldi mistaka,“ sagði Nyegaard.

En afhverju ætti Bjerringbro-Silkeborg að hafa verið að reyna tapa viljandi?

Jú - ástæðan er nokkuð einföld. Með þessu þá sleppur liðið að leika í riðli með Álaborg og GOG í fjögurra liða riðli úrslitakeppninnar. Í úrslitakeppninni er liðunum átta sem komast í úrslitakeppnina skipt í tvo fjögurra liða riðla þar sem tvö efstu liðin komast áfram í undanúrslitin. Fyrirfram er búist við því að Álaborg og GOG komist áfram úr sínum riðli og því telja sérfræðingar að Bjerringbro-Silkeborg hafi viljnandi tapað gegn Grindsted til að forðast það að lenda í sama riðli og dönsku risarnir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top