Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Afturelding - Haukar (Mánudagur 19:00) / Sigurvegari: Haukar (Staðan í einvíginu er 0-1) Haukar rulluðu yfir Mosfellinga í fyrsta leik liðanna á Ásvöllum um daginn. Afturelding vann báða leiki liðanna í deildinni í vetur svo þeir vita hvernig á að vinna Haukana. Það hefur hins vegar lítið gengið hjá Mosfellingum eftir áramót og erfitt að ætla kveikja á sér þegar í úrslitakeppnina er komið. Þeir munu þó gefa Haukum meiri leik í kvöld heldur en á fimmtudaginn í síðustu viku en Haukar munu þó klára þennan leik í kvöld og einvígið 0-2. Fram - FH (Mánudagur 19:30) / Sigurvegari: Fram (Staðan í einvíginu er 0-1) Frábær leikur þegar þessi lið mættust í Kaplakrika um daginn. Það var stál í stál allt þar til FH skoraði fimm mörk í röð og Jón Þórarinn lokaði markinu. Það var mikið af leikmönnum Fram sem áttu lélegan dag svo Einar Jónsson og hans drengir munu þurfa selja sig dýrt í kvöld ef þeir ætla ekki í sumarfrí. Þetta er algjör 50/50 leikur og getur farið hvernig sem er en við verðum að fá einn oddaleik í þessi 8 liða úrslit sem ég ætla að spá Fram sigri á heimavelli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.