Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur línumaður Vals, Þorvaldur Örn Þorvaldsson samið við pólska félagið GE Wybrzeże Gdansk og gengur hann til liðs við félagið í sumar. Þorvaldur fór til Póllands í byrjun árs á reynslu hjá félaginu og fékk í kjölfarið samningstilboð frá pólska liðinu sem situr í 3.sæti pólsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir með 45 stig, 20 stigum á eftir Wisla Plock sem er á toppi deildarinnar. Wisla Plock og Kielce eru með töluverða yfirburðir í pólsku deildinni. Þorvaldur sem er fæddur árið 2004 er uppalinn hjá Val og hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu undanfarin tvö tímabil. Hann var í eldlínunni í Kórnum í gær þegar Valur tryggði sér sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins eftir 2-0 sigur gegn HK í 8-liða úrslitunum. Þorvaldur skoraði eitt mark úr einu skoti í leiknum í gær en Valur hefur áður staðfest að línumaðurinn, Jón Ásgeir Eyjólfsson leikmaður Stjörnunnar muni leika liðinu næstu árin. Ekki hefur náðst í Þorvald við vinnslu fréttarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.