Bjerringbro-Silkeborg hefur verið kært fyrir meinta hagræðingu úrslita
Michael Hundt / AFP

Danska úrvalsdeildarliðið Bjerringbro-Silkeborg hefur verið kært fyrir meinta hagræðingu úrslita eftir afar sérstakt tap gegn Grindsted um helgina í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Leikur sem á pappír átti ekki að skipta miklu en gæti hafa skipt öllu. 

Grindsted var löngu fallið en samt náði liðið að kreista út eins marks sigur eftir að hafa verið fimm mörkum undir á tímabili í seinni hálfleik. Það eitt og sér vakti spurningarmerki margra.

Bjerringbro-Silkeborg tapaði leiknum óvænt 27–26. Handkastið greindi frá málinu í gær en nú hefur TV2 í Danmörku greint frá því að danska félagið hafi verið kært vegna tapsins. Í umfjöllun TV2 segir að áhorfandi á leiknum hafi hvatt Danmarks Idrætsforbund (DIF) til að grípa inn í málið, samkvæmt tölvupósti sem sendur var til TV 2 Sport.

Vert er að taka fram að áhorfandinn sendi tölvupóstinn til DIF aðeins tveimur klukkustundum eftir að leiknum lauk á laugardag, áður en fjölmiðlaumfjöllun fór af stað af alvöru.

Handboltasérfræðingar TV 2 Sport voru ekki í neinum vafa um að Bjerringbro-Silkeborg hafi tapað leiknum viljandi til að forðast Álaborg og GOG í úrslitakeppninni. Því hefur liðið sjálft hafnað. Aganefndin tilkynnti á mánudag að henni hefði ekki borist nein tilkynning vegna leiksins.

DIF hefur upplýst TV 2 Sport um að til þess að þau geti tekið málið til meðferðar þurfi DanskHåndbold að senda formlega beiðni vegna brots á óíþróttamannslegri hegðun, en það hefur ekki verið gert.

Bjerringbro-Silkeborg hefur að sjálfsögðu vísað þessu alfarið á bug.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top