Eduard Koksharov fallinn frá
AFP

Það bárust sorgartíðindi í morgunsárið þegar Meshkov Brest sagði frá því að aðalþjálfari liðsins Eduard Koksharov hefði fallið frá einungis 50 ára að aldri.

Eduard var þjálfari Brest í Belarús en hann vann Olympíugull með rússneska landsliðinu og hann hefur unnið HM og Meistaradeild Evrópu. Þekktastur er hann fyrir tíma sinn með slóvenska liðinu Celjle Lasko, hvar hann spilaði í 12 tímabil og vann Meistaradeild Evrópu með liðinu 2004.

Brest segir í tilkynningu sinni að liðið sendi dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu og aðstandenda hans og að liðið muni minnast hans sem einhvers sem skildi mark sitt eftir á liðið og í hjörtum allra sem þekktu hann.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top