Fyrrum leikmaður Fram framlengir við Hannover
Sebastian Räppold / AFP

Færeyski handknattleiksmaðurinn Vilhelm Poulsen hefur framlengt samning sinn við þýska liðið TSV Hannover-Burgdorf til ársins 2027. 

Vilhelm Poulsen lék með Fram í Olís-deild karla í tvö tímabil á árunum 2020-2022 áður en hann fór til Danmerkur. Hann gekk í raðir Hannover-Burgdorf frá Lemvig sumarið 2024 og er að klára sitt annað tímabil hjá félaginu.

Hinn 26 ára vinstri handar skytta mun því halda áfram að spila í hægri skyttustöðunni, þar sem hann myndar par með þýska landsliðsmanninum Renars Uscins. Sigvaldi Björn Guðjónsson verður liðsfélagi Vilhelms á næstu leiktíð en hann gengur til liðs við félagið frá Kolstad í sumar.

Þjálfarinn Juan Carlos Pastor sagði að Poulsen væri mikilvægur fyrir liðið, sérstaklega í vörninni, en hann telur líka að Poulsen geti lagt meira af mörkum í sóknarleiknum í framtíðinni. 

Vilhelm hefur spilað yfir 40 landsleiki fyrir færeyska landsliðið. Liðið er um miðja deild og lítur félagið á framlenginguna sem mikilvægt skref fyrir áframhaldandi uppbyggingu liðsins. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top