Gerir ráð fyrir Starra og Sveini Andra í leiknum í kvöld
Egill Bjarni Friðjónsson

Segja mætti að Stjarnan væri komið með bakið upp við vegg í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni eftir eins marks tap gegn Fjölni í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum umspilsins á föstudagskvöldið. Vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslitaeinvígið um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Fjölnir vann leikinn með einu marki 23-24 en leikur tvö fer fram í Grafarvoginum á þriðjudagskvöldið. Athygli vakti að Starri Friðriksson fyrirliði Stjörnunnar var ekki með liðinu í leiknum á föstudaginn og þá kom Sveinn Andri Sveinsson ekkert við sögu í leiknum.

,,Starri var aumur í baki og við erum með flotta örvhenta stráka til að fylla í það skarð. Sveinn Andri varð fyrir smá hnjaski en ég geri ráð fyrir öllum klárum í hörkuleik á þriðjudaginn,” sagði Sverrir Eyjólfsson nýráðinn þjálfari Stjörnunnar í viðtali við Handkastið eftir tapið á föstudaginn.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 í kvöld og með sigri getur Fjölnir tryggt sér í úrslitaleik umspilsins og þar með fellt Stjörnuna niður í Grill66-deildina.

Rætt var um einvígið í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top