Íslenski landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason hefur samið við FC Barcelona til ársins 2029 en spænska félagið tilkynnti vistaskiptin í síðustu viku. Hann kemur til félagsins í sumar frá ungverska liðinu Pick Szeged og á að fylla skarð Domen Makuc sem fer til Kiel. Á ferlinum hefur Janus Daði leikið víða meðal annars með Álaborg, Göppingen, Kolstad og Magdeburg áður en hann fór til Szeged. Hjá Barcelona mun hann hitta samherja sinn úr íslenska landsliðinu, Viktor Gísla Hallgrímsson. Janus Daði verður fimmti Íslendingurinn til að leika með Barcelona en áður hafa Viggó Sigurðsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálmarsson leikið með handboltaliði Barcelona. „Ég vona að ég geti lagt mitt af mörkum með styrk mínum og hugarfari hjá liði sem er nú þegar mjög farsælt. Það var ekki erfitt að taka ákvörðun þegar Barça hafði samband við mig. Þetta er líklega stærsta félag í heimi og það er heiður fyrir mig, sem leikmann, að vera hluti af þessari fjölskyldu," sagði Janus Daði í samtali við Mundo Deportivo.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.