Norðurlöndin: Sävehof og Skara leiða í úrslitakeppninni
Savehof

Deildarkeppninni er lokið í flestum deildum Norðurlandanna og nú þegar er úrslitakeppnin farin af stað í kvennadeildinni í Svíþjóð. Íslendingaliðin Sävehof og Skara eru bæði komin í forystu í sínum einvígum eftir sigra á heimavelli.

Sävehof tók á móti Skuru í kvöld í Partille Arena en leikurinn var mun jafnari miðað við að þarna voru deiildarmeistararnir að mæta liðinu í áttunda sæti. En Sävehof hafði þó betur að lokum, 26-23. Elín Klara Þorkelsdóttir átti erfitt uppdráttar aldrei þessu vant í kvöld en hún skoraði þrjú mörk úr tíu skotum og klikkað eina vítinu sem hún tók og gaf einnig tvær stoðsendingar. Annar leikur liðanna fer fram á fimmtudagskvöldið á heimavelli Skuru.

Skara hóf sitt einvígi í gærkvöldi en þá vann liðið mjög öruggan sigur á VästeråsIrsta, 32-22. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar. Næsti leikur liðanna fer fram í Västerås á föstudaginn langa.

Úrslit liðanna:

Sävehof 26-23 Skuru

Skara 32-22 VästeråsIrsta

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top