Rúnar Kára leggur skóna á hilluna
Kristinn Steinn Traustason

Rúnar Kárason leikmaður Fram er hefur leikið sinn síðasta leik á ferlinum. Þetta tilkynnti Rúnar á Instagram síðu sinni.

Rúnar lék síðasta leik sinn á ferlinum í tapi gegn FH í gær á heimavelli er liðið féll úr leik 2-0 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Rúnar varð Íslands- og bikarmeistari með Fram á síðustu leiktíð. Rúnar verður 38 ára síðar á þessu ári en hann er uppalinn hjá Fram.

,,Ætli þetta sé ekki tekið á einum af mínum fyrstu mótum í handbolta ca. 1996. 4 árum síðar var ég orðinn staðráðinn í að komast í landsliðið og atvinnumennsku. Það tókst. Ferillinn var allskonar, stórkostlegur og hörmung. 30 ár af handboltaiðkun, 21 tímabil í meistaraflokki. Takk til þeirra sem voru samferða, takk fyrir stuðninginn, takk fyrir mig," skrifar Rúnar við færslu sína.

Rúnar hóf ferilinn með Fram en fór 21 árs gamall í atvinnumennsku til Fuchse Berlín í Þýskalandi. Hann lék einnig með Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar Löwen og Hannover Burgdorf á tíu árum þar í landi, frá 2009 til 2018.

Þaðan fór hann til Ribe-Esbjerg í Danmörku áður en hann sneri heim og gekk í raðir ÍBV. Hann varð Íslandsmeistari með ÍBV tímabilið 2022/2023 og fór í kjölfarið til Fram þar sem hann lék þrjú tímabil.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top