Íslands- og bikarmeistarar Fram frá síðustu leiktíð eru farnir í sumarfrí eftir 2-0 tap gegn FH í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins en Fram tapaði einnig í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins á þessu tímabili auk þess sem liðið endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar. Rúnar Kárason sem verður 38 ára á árinu var spurður að því í viðtali við mbl.is eftir leikinn í gær hvort hann hafi verið að leika sinn síðasta leik í gærkvöldi en hann skoraði tvö mörk úr ellefu skotum í leiknum. ,,Ég hugsa að ég muni einhvern tímann spila handboltaleik aftur. Ég vil sem minnst um það segja. Einar er búinn að vera mikilvægur maður í mínu handboltalífi bara síðan ég var 14 ára og við áttum okkur drauma á þessu tímabili sem gengu ekki upp og mjög erfitt að kyngja því. Mig langar ekki að gefa neitt upp með framtíðina núna,“ sagði Rúnar við mbl.is eftir leikinn en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Fram. Hann er ekki bara leikmaður hjá Fram heldur er hann rekstrarstjóri handknattleiksdeildar Fram og yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu og þjálfar venslalið Fram í Grill66-deildinni. „Ég er svo sem ekki að fara neitt frá Fram, ég er hér á fullu og það er engan bilbug á mér að finna þar," sagði hann ennfremur.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.