Sjáðu eitt glæsilegasta mark úrslitakeppninnar
Egill Bjarni Friðjónsson

Eitt fallegasta mark úrslitakeppninnar til þessa leit dagsins ljós í Kórnum á sunnudagskvöldið þegar HK og Valur mættust í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Valur hafði betur í leiknum 32-28 og sló HK þar með úr leik úr úrslitakeppninni.

HK-ingar skoruðu þrátt fyrir það fallegasta mark leiksins og jafnvel úrslitakeppninnar til þessa þegar hornamaðurinn stóri og stæðilegi, Tómas Sigurðarson skoraði laglegt sirkusmark eftir frábæra sendingu frá Hirti Ingi Halldórssyni samherja sínum.

Hægt er að sjá sirkusmarkið sem var af dýrari gerðinni hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top