Sjáðu glæsilegt mark Ómars Darra gegn Fram
Eyjólfur Garðarsson

Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði átta mörk og var næst markahæstur í liði FH í sigri liðsins gegn Fram í gærkvöldi, 27-33 þegar liðið tryggði sér í undanúrslit Íslandsmótsins. FH mætir annað hvort Haukum eða Aftureldingu í undanúrslitum en það ræðst á fimmtudaginn.

Rætt var um frammistöðu Ómars Darra í leiknum í Handboltahöllinni í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans í gærkvöldi.

,,Ómar Darri byrjaði þennan leik, Garðar Ingi Sindrason byrjaði á bekknum og kannski einhver skilaboð þar en Ómar Darri byrjaði frábærlega og hélt því áfram," sagði Hörður Magnússon.

,,Hann kom sterkur inn í síðasta leik og byrjaði vel í gær. Hlutverk Garðars var að koma inn eftir 10-15 mínútur," bætti Ásbjörn við áður en komið var að því að sýna glæsilegt mark Ómars í þættinum.

,,Ómar Darri skoraði mark leiksins," sagði Hörður um mark Ómars Darra í stöðunni 13-16 fyrir FH í upphafi seinni hálfleiks.

Markið og umræðuna um Ómar Darra er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top