Stymmi Spáir í leiki dagsins

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi.

Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins

Fjölnir - Stjarnan (Þriðjudagur 19:30) / Sigurvegari: Stjarnan  (Staðan í einvíginu er 1-0)

Fjölnir komu öllu á óvart með því að sigra Olís deildar lið Stjörnunnar í Garðabænum á föstudaginn. Staðan er einföld, ef Stjarnan tapar í kvöld leika þeir í Grill 66 deildinni á næsta ári. Talandi um að vera með bakið upp við vegg. Stjarnan hefur tapað 12 leikjum í röð og það er ekkert grín að snúa því við. Ég held þeir tryggi sér samt oddaleik með sigri í Grafarvoginum í kvöld og oddaleik í Garðabænum síðar í vikunni en það mun ekki vera auðvelt.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top