Fyrsti sigur Stjörnunnar í 129 daga og oddaleikur framundan
Þorgils Garðar Gunnþórsson)

Stjarnan náði að jafna metin í einvíginu gegn Fjölni í umspilinu um laust sæti í Olís-deild karla á næstu leiktíð eftir að hafa tapað á heimavelli í fyrsta leik liðanna. Stjarnan hafði forskot allan leikinn og vann að lokum sex marka sigur 32-26.

Munaði um markvörslu Sigurðar Dans Óskarssonar í marki Stjörnunnar sem var með 15 varin skot en markverðir Fjölnis voru einungis með sjö varða bolta í leiknum. Stjarnan var þremur mörkum yfir í hálfleik 13-10 en liðið hóf leikinn af miklum krafti og komst í 5-1 og 12-8.

Jóel Bernburg kom með góða innkomu í fyrri hálfleik þegar Fjölnir hafði minnkað muninn í eitt mark í stöðunni 7-8 og skoraði þrjú mörk í röð og fiskaði eitt víti. Jóel endaði næst markahæstur í liði Stjörnunnar með sjö mörk en Ísak Logi Einarsson var markahæstur með átta mörk. Benedikt Marinó Herdísarson skoraði sex mörk.

Hjá Fjölni vantaði Þorleif Rafn Aðalsteinsson frá síðasta leik en Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson var markahæstur með sex mörk. Óli Fannar Pedersen skoraði fimm og aðrir minna. Sóknarleikur Fjölnismanna var ekki upp á marga fiska og tapaði liðið fjölmörgum boltum auk þess sem leikmenn Fjölnis voru oft í vandræðum með að hitta á markið.

Nú er ljóst að liðin mætast í oddaleik í Heklu-höllinni en sigurliðið fer í úrslitaeinvígið um laust sæti í Olís-deildinni og mætir þar annað hvort Gróttu eða Herði en Hörður er 1-0 yfir í því einvígi. Oddaleikur Stjörnunnar og Fjölnis fer fram á laugardaginn næstkomandi.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top