Danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen stendur frammi fyrir breytingum í þjálfarateymi sínu, þar sem hann þarf að finna sér nýjan aðstoðarlandsliðsþjálfara. Ástæðan er sú að Henrik Kronborg hefur ákveðið að hætta í starfi eftir langan og farsælan feril hjá danska handknattleikssambandinu. Með brotthvarfi hans lýkur merkilegum kafla, en hann hefur starfað í yfir 20 ár innan danska handknattleikssambandsins og tekið þátt í allt að 14 stórmótum með landsliðinu. Kronborg hefur gegnt lykilhlutverki sem hægri hönd Jacobsens á undanförnum árum og verið mikilvægur hluti af þeim árangri sem danska landsliðið hefur náð á alþjóðavettvangi. Brottför hans þýðir því að Jakobsen þarf nú að endurskipuleggja þjálfarateymið og finna nýjan einstakling í eitt mikilvægasta hlutverkið innan liðsins. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Nikolaj Jacobsen og danska handknattleikssambandið mikinn áhuga að fá Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfara Íslands í starfið. Samningur Arnórs Atlasonar sem aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands rennur út á næstu dögum samhliða því að samningur Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara rennur út. Samkvæmt heimildum Handkastsins hafa viðræður HSÍ við Snorra Stein dregist á langinn vegna þess að Snorri hefur lagt áherslu á að halda Arnóri Atlasyni áfram sem aðstoðarlandsliðsþjálfara. Hefur áhugi danska sambandsins á Arnóri haft áhrif á viðræður Arnórs við HSÍ samkvæmt heimildum Handkastsins. Arnór Atlason er í dag þjálfari TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni en hann er á sínu þriðja tímabili með liðið. Þar áður var hann í þjálfarateymi Álaborgar í fimm ár. Rætt var um þetta í nýjasta þætti Handkastsins sem gefinn var út seint í gærkvöldi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.