

Handboltakonan Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður Fram í Olís-deild kvenna er á leið til þýska stór liðsins Thüringer í sumar eftir að hafa vakið athygli þjálfara liðsins á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi fyrir áramót með íslenska landsliðinu. Hún hefur leikið með Fram síðustu ár og staðið sig það vel að hún tryggði sér sæti í landsliðinu en Alfa Brá er uppalin hjá HK og lék þar fyrstu leiki sína í meistaraflokki. Það var einmitt á HM í Þýskalandi sem þjálfari Thüringer sá hana spila og fékk áhuga á henni. Í kjölfarið fóru af stað viðræður við umboðsmann hennar sem leiddu til þess að hún fékk tækifæri til að semja við félagið. Þjálfarinn greindi frá því á heimasíðu félagsins þegar Alfa Brá var kynnt hjá félaginu. „Já það er gaman að hann hafi tekið eftir mér þar. Svo var hann bara í samræðum við umboðsmanninn minn og þegar ég fékk þetta tækifæri varð ég strax spennt. Þetta er flottur klúbbur og ég er mjög spennt fyrir þessu,“ sagði Alfa Brá í viðtali við Vísi á dögunum. Hún segir þó að hún hafi ekki gert sér grein fyrir því á mótinu að verið væri að fylgjast sérstaklega með henni, þó hún viti að slíkt sé algengt á stórmótum þar sem lið skoða leikmenn. „Nei en auðvitað er þetta stór vettvangur og þangað koma liðin til að fylgjast með og skoða leikmenn. Þannig að það kemur manni ekkert á óvart en maður var ekkert að pæla í því.“ Flutningurinn til Þýskalands er stórt skref fyrir hana, enda er Thüringer eitt af sterkari liðum þar í landi og hefur náð góðum árangri í Evrópukeppni. Liðið vann til að mynda Evrópudeildina á síðustu leiktíð. Persónulegar aðstæður spiluðu líka hlutverk, þar sem kærasti hennar leikur einnig í Þýskalandi. Kærasti hennar, Reynir Þór Stefánsson leikur með MT Melsungen en hann gekk í raðir félagsins síðasta sumar eftir að hafa slegið í gegn með Fram í Olís-deild karla. „Ég valdi nú kannski ekki út frá því en auðvitað er það bónus að vera nálægt kærastanum mínum í Þýskalandi, en það var ekki endilega það sem gerði útslagið… Þetta er svona einn og hálfur klukkutími á milli bæja en við ætlum að reyna að búa þarna í miðjunni. Það er þess virði, þó maður þurfi að keyra smá.“ Alfa Brá hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Fram líkt og Handkastið hefur áður greint frá en hún glímir við bakmeiðsli og leikur ekki meira á tímabilinu. „Það eru þvílík vonbrigði að detta út svona í lok tímabils og missa af úrslitakeppninni. Þær eiga einmitt leik núna á laugardaginn gegn ÍR í úrslitakeppninni og það er bara mjög vont að vera ekki að spila með þeim,“ sagði hún, en vonast til að verða tilbúin þegar undirbúningstímabilið hefst hjá nýja liðinu," sagði Alfa Brá að lokum í viðtali við Vísi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.