
Fjórir leikir fóru fram í Evrópudeildinni í gær og áttum við Íslendingar 5 fulltrúa í eldlínunni. Nú er komið inn í útsláttarkeppni í Evrópudeildinni og leikir gærdagsins voru farmiði í 8-liða úrslit keppninnar. Tryggvi Þórisson og liðsfélagar hans í Elverum töpuðu 36-24 fyrir Montpellier í Frakklandi. Tryggvi skoraði 2 mörk í gær. Liðin mætast svo aftur 7. apríl í Noregi en ljóst er að brekkan er brött fyrir síðari leikinn. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir HC Vardar í 8-liða úrslitunum. Kristján Örn Kristjánsson (Donni) og félagar í Skanderborg Aarhus töpuðu fyrir stórliði Flensburg, 32-38. Donni skoraði 1 mark. Síðari leikurinn verður 7. apríl í Flensburg og ljóst að það verður ærið verkefni fyrir Donna og félaga. Sigurvegarinn úr einvíginu mætir lærisveinum Heiðmars Felixsonar í Hannover Burgdorf í 8-liða úrslitunum. Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í IFK Kristianstad töpuðu fyrir RK Nexe 34-36. Einar Bragi skoraði 2 mörk. Liðin mltast svo aftur 7. apríl í Króatíu og munu Einar Bragi og félagar þurfa að vinna upp tveggja marka forskot RK Nexe. Stórliðið THW Kiel sem margir telja sigurstranglegast í keppninni bíður sigurvegaranum úr einvíginu í 8-liða úrslitunum. Þá töpuðu Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson í Melsungen óvænt fyrir Fredericia 35-29 í Danmörku. Reynir skoraði 1 mark en Arnar Freyr komst ekki á blað. Það er ljóst að Melsungen þurfa að mæta með allt sitt í síðari leikinn til þess að bóka sæti sitt í 8-liða úrslitunum. Þorsteinn Leó Gunnarsson og liðsfélagar í Porto bíða sigurvegarans úr einvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.