HSÍ vill halda Arnóri Atlasyni – Á kafi í samningaviðræðum
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Handkastið greindi frá því fyrst allra fjölmiðla í heiminum í gær að Arnór Atlason aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins væri á blað hjá danska handknattleikssambandinu um að verða næsti aðstoðarþjálfari Nikolaj Jacobsen með danska landsliðið.

Viðræður Handknattleikssambands Íslands við Snorra Stein Guðjónsson um landsliðsþjálfarastarfið virðast ganga hægar en vonast var til og samkvæmt heimildum Handkastsins er ástæðan sú að Arnór Atlason sé í viðræðum við danska sambandið. Snorri Steinn hefur lagt mikla áherslu á að Arnór Atlason verði áfram hluti af þjálfarateymi sínu í viðræðum sínum við HSÍ.

Arnór er nú þegar við störf hjá danska félaginu TTH Holstebro samhliða verkefnum sínum með íslenska landsliðinu og hefur því sterka tengingu við danskan handbolta. Talið er að það geti haft áhrif á framgang mála í viðræðunum.

Jón Halldórsson, formaður HSÍ segir í samtali við Vísi að unnið sé að samningum og segir stöðuna vera í virkri vinnslu.

„Við erum á kafi á samninga­viðræðum,“ segir Jón í samtali við Vísi. „Við viljum bæði Snorra og Arnór. Það styttist í fréttir af þessu. Við erum bara í góðu sam­tali við um­boðs­menn þeirra. Þetta er allt á réttri leið.“

Hann leggur áherslu á að það sé skýrt markmið sambandsins að halda þeim báðum innan teymisins.

„Það er bara skýrt tak­mark, það er það sem við viljum.“

Í samtali við TV 2 í Danmörku segir danski landsliðsþjálfarinn Nikolaj Jacobsen vera með nokkur nöfn í huga sem næsta aðstoðarlandsliðsþjálfara. Hann segist taka mikinn þátt í ráðningarferlinu.

,,Fyrir mitt leiti er það mikilvægt að næsti að­stoðar­lands­liðsþjálfari sé ein­hver sem ég næ persónu­lega að tengja vel við sjálfur. Ég er með nokkra mögu­lega arf­taka Kron­borg í huga. Nú er bara spurningin hvort við fáum ein­hvern til að taka stökkið til okkar," sagði Nikolaj Jacob­sen við TV 2.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top